Hér er leikjaniðurröðun morgundagsins. Það getur tekið breytingum þegar á líður daginn og þurfa allir að fylgjast vel með á morgun með framvindu mótsins. Ennfremur er það reynsla mótshaldara að þátttakendur í Gleðideild eiga það til að mæta illa í leiki á sunnudeginum. Öllum liðum er heimilt að finna sér andstæðinga í stað þeirra sem ‘klikka’ og eru þeir í raun hvattir til þess að nota vellina og spila sem flesta leiki.

Mótshaldarar geta ekki ábyrgst mætingu liða í leikina og í raun ekkert við því að gera ef lið mæta ekki, nema að gera gott úr stöðunni og finna sér verðuga andstæðinga, t.d. úr röðum þeirra sem detta út í fyrstu umferð úrslitanna.

Nánari upplýsingar og útskýringar er að finna hjá mótsstjórn (rauði skúrinn við ána). Þetta plan er birt með fyrirvara um breytingar vegna mistaka við útreikning. Ef það eru einhver mistök í þessu plani (sem geta alltaf gerst þegar mannshöndin er við stjórn) er hægt að hringja í s.8994311 í kvöld. Viðkomandi mýrarboltamaður (Jón Páll) verður á vaktinni á ballinu í kvöld og óhætt er að hringja til 0300 i nótt :).