Fréttir
Mýrarboltamótið 2012
10/1 2012
Mýrarboltamótið 2012 verður haldið á Verslunarmannahelginni. Eyjólfi Sverrissyni verður ekki boðin landsliðsþjálfarastaða aftur, eftir klúðrið í fyrra. Þess í stað verður róið á önnur mið, vonandi gjöfulli.
Aðskilnaðarsamtök Vestfjarða mýrarboltameistarar 2011
1/8 2011
Mýrarboltamótið gekk frábærlega. Þátttakendur voru margir, en — sem meira er um vert — afar skemmtilegir. Veðrið var gott og aðstæður allar ákjósanlegar. Mýrarboltameistararnir þetta árið, og liðið sem hampaði mýrarboltabikarnum, stærsta bikar í íslenskri íþróttasögu eru Aðskilnaðarsamtök Vestfjarða. Eins og áður hefur komið fram er mýrarboltabikarinn veittur annaðhvort sigurliði karladeildar eða sigurliði kvennadeildar á Continue Reading »
Drulluflottar og góðtemplararnir unnu
31/7 2011
FC Drulluflottar sigruðu kvennadeild mýrarboltamótsins í ár. Ofurkonur unnu til silfurverðlauna og Purple cobras náðu þriðja sætinu. Aðskilnaðarsamtök Vestfjarða, sem ritstjórn kallar Góðtemplarasamtök Vestfjarða, vann karladeildina eftir úrslitaleik við FC Rangstæða sem unnu þannig silfurverðlaun. Píkubanar kræktu í bronsið. Ekki verður gefið upp strax hvaða lið hreppir mýrarboltabikarinn og verður titlað mýrarboltameistari ársins 2011. Það verður Continue Reading »