Mótið 2009

 

Dagskrá Mýrarboltamótsins á Ísafirði 2009

Dagskrá getur tekið breytingum og áskilur mótsstjórn sér allan rétt til að breyta og bæta án fyrirvara... 

 

Föstudagur:

18:00 Skráning á Edinborg. Allir þátttakendur þurfa að mæta og ganga frá greiðslu (hægt að koma með kvittun fyrir innleggi) og fá reglur og skráningargögn ásamt armbandi sem er nauðsynlegt til að fá aðgang að móti, lokahófi og balli!

20:00 Dregið í riðla 

22:00 Hljómsveit (óákveðið) spilar framá nótt. Frítt fyrir alla sem eru með armband!!

 

Laugardagur:
Á mótssvæði er veitingasala allan tíman frá strákunum við Pollinn.

10:00 Leikir hefjast samkvæmt leikjaplani. Leikjaplan er gefið út strax eftir a dregið hefur verið í riðla

12:00 Drulluteigja

13:00 Tónlistarviðburðir hefjast

13:30 Sápubolti fyrir krakka 

17:00 Leikjum dagsins lýkur

20:00 Tilboð á einhverju spennandi fyrir þátttakendur með armband í Edinborg

23:00 Verið er að skoða ball í edinborg... jafnvel frítt fyrir þá sem eru með armband

 

Sunnudagur:
Á mótssvæði er veitingasala allan tíman frá strákunum við Pollinn.

10:00 Leikir hefjast

12:00 Drulluteigja

13:00 Tónlistarviðburðir á mótssvæði

14:00 áskorendakeppni milli liða í sápubolta 

17:00 Leikjum dagsins lýkur

20:00 Lokahóf byrjar (Innifalið í mótsgjaldi) í félagsheimilinu í Hnífsdal. Lokahófið er gríðarleg skemmtun, verðlaunaafhendingar, matur (frá Thai Koon) og tónlist.

23:00 Ball (frítt fyrir þá sem eru með armband. 2000kall fyrir hina)

 

 

Skráning

Byrjað er að taka við skráningum hér á síðunni. Skráningar verða rafrænar og skylt að greiða staðfestingargjald fyrir hvert lið.

Hægt er að skrá sig þó maður sé stakur og þá sér mótsstjórn um að koma viðkomandi í lið. stakir keppendur senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Það er heldur aldrei neitt vesen að redda sér liði á skráningarkvöldinu.

Skráningargjald er 5000 kr. per þátttanda þar sem mótsgjald og lókahóf (matur og ball) er innifalið.