Fjölmennasta Evrópumeistaramótinu í Mýrarbolta til þessa er lokið, og eru mótshaldarar ánægðir með árangurinn.   Mýrarboltanefndin harmar þó að engin hafi getað drullað sér til að trúlofa sig, en við erum þrátt fyrir það vissir um að ástin hafi blómstrað á mýrarboltanum, enda fer fátt betur saman en kærleikur og drulla.

Verðlaunahafar á Evrópumeistaramótinu í Mýrarbolta eru eftirfarandi:
Karladeild:
1. sæti: Bert and the He-man hunters
2. sæti: Nefndin
3. sæti: Gemlingarnir

Kvennadeild:
1. sæti: Hasselhoff
2. sæti: Grýlurnar
3. sæti: FC Drulluflottar

Skemmtilegasta liðið: Gemlingarnir
Flottasta markið: Skoraði Bert, úr sigurðliði Karladeildar.
Drullugasti leikmaðurinn: Erlingur í liðinu Mínútumennirnir
Besti leikmaður kvennadeildar: Anna Marzellíusardóttir úr liðinu Hasselhoff.
Besti leikmaður karladeildar: Helga Margrét Þorsteinsdóttir
Bestu tilþrif mótsins:  Einnig Helga Margrét Þorsteindsdóttir fyrir frábæra leikni í tæklingum.

Sigurvegarar í drulluteygju
Karla: Hjalti Einarsson
Kvenna: Salóme Ingólfsdóttir

Nokkrar ljósmyndir frá mótinu:
Baldur Pan
Sigurjón: Laugardagur, Sunnudagur.
Jóhannes Jónsson 

Rit og mótstjórn þakkar fyrir sig, sjáumst drullug að ári.

Share