Úrslit mýrarboltans 2012 eru komin í ljós eftir æsispennandi og drulluga keppni.

Í kvennadeild sigrðuðu Pamelurnar í liðinu Hasselhoff  Grýlurnar í vítaspyrnukeppni. Og má því búast við hertri strandgæslu á Íbizafirði í kvöld.

Í karladeild voru það hinir fræknu Bert and the He-man hunters sem öttu kappi við Nefndina, og hrepptu meistaratitilinn með einu marki gegn engu í æsispennandi leik.  Húsið á sléttuni mun því líklega skella í nokkur sænsk unglingarokklög fyrst að tilefni er til.

Evrópumeistararnir verða svo krýndir á lokahófinu í kvöld á Eimskipsvæðinu.
Húsið opnar 9 og dagskráinn hefst klukkan 10, verðlaunaafhending, kærur lesnar upp og myndir frá mótinu sýndar og síðast en ekki síst dansað fram á rauða nótt!  

Pamelurnar í Evrópumeistaraliðinu Hasselhoff.

Share