Um Mýrarboltann
Eins og alkunna er verður mótið nú haldið í sjötta sinn og eins og undanfarin ár verður leikið á eina viðurkennda keppnissvæði landsins, í Tunguskógi í Skutulsfirði.
Dagskrá Mýrarboltans 2009 hefst á föstudagskvöldið í Kaffi Edinborg en þá verður gengið frá skráningu og armbönd og keppnisgögn afhent. Á laugardagsmorgni hefst svo spilamennskan. Búast má við að leikið verði fram undir miðjan dag. Á fyrri leikdegi verður leikið í riðlum en á sunnudag hefst útslátturinn.
Hefð er fyrir lokahófi á sunnudagskvöldið og verður sú hefð síður en svo rofin í ár.Að þessu sinni munum við verða í Félagsheimilinu í Hnífsdal. Þar verður snætt, drukkið og sungið. Undir miðnætti stígur hljómsveitin Kraftlyfting á svið og leikur fram á rauða nótt. Lokahófið og ballið er innifalið í þátttökugjaldi.
Umgjörð mótsins verður umfram allt skemmtileg eins og alltaf. Að venju verður leikið á þremur keppnisvöllum í Tungudal, en þar að auki stendur til að bjóða keppendum og áhangendum upp á ýmiskonar afþreyingu meðan á móti stendur. Fyrir þetta sumar er áhuginn á mótinu meiri en nokkru sinnu áður. m.a. hafa fjölmargar hljómsveitir haft samband og stendur til að hafa (rokk)tónleika á keppnissvæðinu á meðan mótið stendur yfir.
Ekki má gleyma drulluteygjunni sem keppt hefur verið í frá árinu 2007, og eru athyglisverðar nýjungar í smíðum þessa daganna. Þeir sem luma á nýjungum eru hvattir til að senda hugmyndir á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
Nánari upplýsingar um mótið og skráningar á það má nálgast á þessari síðu. Þá má reikna má með talsvert tíðari fréttaflutningi af framgangi mála héðan í frá.
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 02. júlí 2009 11:45
