|
Veðurstofa Íslands var fengin til að gera spákort fyrir verslunarmannahelgina. Kortið gildir föstudag til mánudags. Keyrið nú varlega. |
|
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 29. júlí 2010 22:13 |
|
|
Úðarar ganga nú nótt sem nýtan dag og fullljóst er orðið að drullan verður svínsleg í ár. Fróðlegt verður að sjá hvernig fólki á eftir að ganga að fóta sig á völlunum sem verða fjórir eins og í fyrra.
Skráningar hafa tekið kipp og hafa nú 30 lið meldað sig inn, 18 karlalið og 12 kvennalið. Frestur til að skila inn skráningum og borga staðfestingagjaldið rennur út klukkan 10 í fyrramálið. |
|
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 29. júlí 2010 08:51 |
Hvað er innifalið?Borið hefur á misskilningi um hversu ótrúlega góður díll það er að taka þátt í Mýrarboltamótinu. Þetta er innifalið: - Skráningarkvöldið og ball um kvöldið með stórsveitinni Appollo..
- Þátttakan í mótinu og aukagreinum
- Matur, lokahóf og ball á sunnudagskvöldið
Samtals gerir þetta sjöþúsundkall að gjafverði.
Böll og brjálæðiKimi records verður með sumargleði sína á Ísafirði um helgina. Mælum sérstaklega með því á laugardagskvöldinu, því á föstudagskvöldinu spilar ísfirska stórhljómsveitin Appolló á balli á Ömmu Habbý. Á laugardagskvöldið er DJ stuð á Ömmu Habbý. Á sunnudagskvöldinu er náttúrulega hið villta tryllta lokahóf. GreiðslurBúið er að uppfæra greiðsluleiðbeiningarnar. Smelltu hér eða leitaðu í valmyndinni til hægri. Dómaranámskeið Árlegt dómaranámskeið var haldið í kvöld. Ein nýjung er falin í reglugerðaflóðinu þetta skiptið. Ef boltinn er stopp í kraðaki, sem gerist oft, sérstaklega undir lok leikja í kvennadeild, er leikur stöðvaður. Dómari kastar boltanum inn á nýjan leik. Gulu, bleiku og svörtu spjöldin verða áfram notuð, og búið er að sauma hauspoka í öllum stærðum og gerðum, en eins og allir vita fá þeir hauspoka sem haga sér dólgslega. |
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 27. júlí 2010 22:12 |
Dagskrá uppfærð
Við erum búin að uppfæra aðeins dagskrána og hinar og þessar síður. Við breytum og bætum eftir því sem við vitum meira. Sjálfboðaliðar Sjálfboðaliðar eru velkomnir og ærin verk af ýmsum gerðum. Sendu póst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
og bjóddu þig fram! Þeir sem eru duglegir fá kannski áheyrn aðalritara mýrarboltafélagsins og fá e.t.v. að kyssa hring hans.  Ný síðaRitstjóri bætti við síðunni mótssvæðið (og tengill í valmyndinni til hægri). Þar eru gagnlega upplýsingar. Blíðviðri Langtímaspáin er geggjuð. Vúhú! Spáð er brakandi blíðu.  Byrjuð að vökva Við erum byrjuð að vökva. Drullan verður fantagóð í ár. Sumir komu í götuklæðnaði á undirbúningskvöldið í kvöld. Aðrir mættu í skítagallanum tilbúnir að vökva. Bretti voru færð á rétta staði og götótt rör sett á strategíska lykilstaði. |
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 26. júlí 2010 23:50 |
|
Dregið var í Mýrarboltaspurningaleiknum á torginu í dag. Háli fór á torgið og fékk einhvern túrista af handahófi til að draga nöfn þátttakenda úr illa lyktandi gúmmítúttu.
Þessir unnu einstaklingsverðlaunin (frítt í sund, frí hamborgaraveisla hjá Ömmu Habbý, ókeypis á mótið og frítt á tjaldsvæðið) Rún Rúnarsdóttir Hilmar Teitsson Ásgeir G. Gíslason Sigurbjörg Magnús Einar Magnússon Og þessir fengu flugferð með Flugfélagi Íslands.
Torfi Jóhannsson Jens Sævarsson Atli Freyr Rúnarsson Haft verður samband við vinningshafa í dag. |
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 26. júlí 2010 13:08 |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 2 af 8 |