|
Eins og í fyrra erum við með straumlínulagað skráningarferli á föstudagskvöldið.
Armbandið er nauðsynlegt - til að mega keppa
- til að mega koma á lokahófi, matinn og ballið
- til að fá frítt inn á Ömmu Habbý á föstudags- og laugardagskvöld
Á skráningarkvöldinu verðum við með tvær raðir, fljótu röðina og hægu röðina. Fljóta röðin er fyrir góðu og þægu börnin og hæga röðin fyrir óþekktarangana sem lesa ekki leiðbeiningarnar. 1. MillifæraMillifærðu fyrir alla í liðinu (að frádreginni staðfestingargreiðslunni). Prentaðu út kvittun. Sendu kvittun á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Passaðu að nafnið á liðinu sé í skýringu. Þá geturðu farið í fljótu röðina og fengið úrlausn þinna mála fljótt og örugglega. Lokafrestur til að millifæra er 15:00 á föstudag. Bankaupplýsingar: banki: 0156-05-64523, kt: 490106-2190 Í hægu röðina fara þeir sem - borga fyrir einn og einn í einu
- setja ekki skýringu
- senda ekki kvittun í tölvupósti eða prenta hana ekki út
 - millifæra eftir klukkan 15:00
2. Borga á skráningakvöldinu Í fljótu röðina fara þeir sem borga (í peningum eða með kortum) fyrir alla í einu á Ömmu Habbý í Edinborgarhúsinu á föstudaginn. Í hægu röðina fara þeir sem - borga fyrir einn og einn í einu
Nokkrar spurningar Er hægt að borga á laugardeginum? Bara í undantekningartilvikum. Best er að fyrirliðinn sjái um að sækja armbandið fyrir þá sem komast ekki strax. Skrapliðsmenn sem komast ekki á skráningarkvöldið geta t.d. borgað á laugardeginum. Hvenær og hvar kaupir maður miða á lokahófið og ballið (fyrir þá sem komast ekki á mótið sjálft)? Á skráningarkvöldinu kaupir maður miða á lokahófið og ballið (t.d. fyrir maka eða þá sem geta ekki keppt). Verðið er 5000 kr. fyrir það. Takmarkað magn fyrstir koma fyrstir fá. Er hægt að fá endurgreitt ef borgað er fyrir of marga? Já, en ekki fyrr en eftir mót þegar rykið hefur sest og drullan skolast burt. En með skrapliðin?  Skrapliðsfólk fær að fara í fljótu röðina til að borga fyrir sig. Gummi yfirskrapari verður á staðnum til að stilla saman strengi (690-9999). Verið er að útvega stuttermaboli í samstæðum litum fyrir skrapliðin. Fleiri spurningar? Komdu á skráningarkvöldið! Skráningakvöldið Skráningin hefst kl. 20:00 í stóra salnum í Edinborgarhúsinu. Klukkan 22:00 er dregið í riðla, reglur kynntar og leikskipulag útskýrt og sýnt. Fundarstjóri er gleðipinninn Hálfdán Bjarki Hálfdánarson. Skráningarkvöldinu lýkur um klukkustund seinna. Mælt er með því að fá sér bjór á barnum og byrja að semja hvatningarsöngva. |