|
Stöð 2 gerði flotta frétt í kvöld um alheimsmótið í barnamýrarbolta. Sjá hér. |
|
|
Undirbúningur er hafinn inni í Tungudal fyrir Mýrarboltamótið. Mörkin hafa verið sett upp, vökvun er hafin og vellirnir verða plægðir á morgun, laugardag. Meðfylgjandi mynd var tekin í dag af sérdeilis rammgerðu marki sem notast verður við í ár.
Alheimsmeistaramót barna í mýrarbolta verður haldið á sunnudaginn. Keppt er í 7., 6., og 5. flokkum og stendur Boltafélag Ísafjarðar fyrir mótinu. Öllum er heimilt að koma og horfa á. Og smakka á drullunni. Forsmekkurinn að rosalegri mýrarboltaverslunarmannahelgi. |
|
Síðast uppfært: Föstudagur, 23. júlí 2010 21:29 |
|
Tvær nýjar aukagreinar verða í boði í ár á Mýrarboltamótinu. Önnur er drullulangstökk í tveimur flokkum. Annarsvegar verður langstökk með drulluatrennu og hinsvegar langstökk með grasatrennu.
Hin greinin er kajakdráttur. Sex eru í hverju liði. Spotti er bundinn í bátinn, einn sest í kajakinn og hinir fimm raða sér á spottann. Tvö lið keppa í einu í að draga bátinn sinn yfir völlinn. Skráning er á staðnum og er þátttaka innifalin í mótsgjaldi. |
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 20. júlí 2010 12:08 |
|
Þegar við fórum af stað með lauflétta spurningaleikinn okkar heyrðust úrtöluraddir víða að. „Nei, þið getið ekki fengið meiri, fleiri eða veglegri verðlaun en þetta“ sögðu sumir. „Það mun enginn taka þátt“ sögðu aðrir. „Spurningarnar eru ekki laufléttar heldur níðþungar sögðu enn aðrir.
En allt kom fyrir ekki, að lokum reynast allar þessar dómsdagsspár, allur þessi bölmóður og allt þetta tuð vera einmitt það; tuð. Hjómið eitt. Allt reyndist rangt! Tökum þetta bara lið fyrir lið. 1. Við fengum veglegri verðlaun. Flugfélag Íslands hefur gefið flugmiða. Þeir sem þegar hafa tekið þátt eru sjálfkrafa með í flugmiðapottinum líka. 2. Fullt af fólki hefur tekið þátt. Ekki þó svo margir að það borgi sig ekki að láta reyna á heppnina. Eins og einn góður mýrarboltaspilari sagði í samtali við blaðamann, þá skorar maður ekki nema skjóta. Sá leikmaður skorar reyndar sárasjaldan, en það er önnur saga. 3. Spurningarnar eru víst laufléttar. Alveg dúnléttar. Taktu þátt! |
|
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 15. júlí 2010 08:41 |
|
Skráning er hafin fyrir mótið 2010. Skráningargjald eru skitnar 7000 krónur. Innifalið, fyrir utan náttúrulega þátttökuna sjálfa er matur, lokahóf og ball. Nákvæm dagskrá liggur ekki enn fyrir. Við verðum með sama fyrirkomulag og síðast: hvert lið skráir sig með sirka fjölda í liði. Skráningu liðs verður að staðfesta með staðfestingargjaldi sem samsvarar skráningargjöldum fyrir tvo leikmenn. Ef liðið kemur til leiks, gengur staðfestingargjaldið að sjálfsögðu að fullu uppí skráningargjöldin fyrir liðið. Ef liðið mætir ekki til leiks höldum við staðfestingargjaldinu eftir (jafnvel þó einhverjir leikmenn kunna að finna sér annað lið). Það er nefnilega stórt skipulagsmál að vita hversu mörg lið verða og geta treyst þeirri tölu. Eins og alltaf verðum við með skraplið fyrir karla og konur sem ekki komast fyrir í öðrum liðum. Umsjónarmaður skrapliða er sem fyrr Gylfi í síma 693-3916 eða í tölvupósti á netfang mótsins. |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 3 af 8 |