Skráningarkvöld og greiðslur

Það eru mun fleiri í ár en búist var við. Við þurfum því að straumlínulaga skráningarferlið á föstudagskvöldið.

Armbandið er nauðsynlegt

  • til að mega keppa
  • til að mega koma á lokahófið
  • til að fá frítt inn á Kaffi Edinborg á föstudags- og laugardagskvöld 

Á skráningarkvöldinu verðum við með tvær raðir, fljótu röðina og hægu röðina. Fljóta röðin er fyrir góðu og þægu börnin og hæga röðin fyrir óþekktarangana sem lesa ekki leiðbeiningarnar.

1. Millifæra

Millifærðu fyrir alla í liðinu (að frádreginni staðfestingargreiðslunni). Prentaðu út kvittun. Sendu kvittun á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Passaðu að nafnið á liðinu sé í skýringu. Þá geturðu farið í fljótu röðina og fengið úrlausn þinna mála fljótt og örugglega. Lokafrestur til að millifæra er 15:00 á föstudag.

Bankaupplýsingar: banki: 0156-05-64523, kt: 490106-2190

Í hægu röðina fara þeir sem

  • borga fyrir einn og einn í einu
  • setja ekki skýringu
  • senda ekki kvittun í tölvupósti eða prenta hana ekki út
  • millifæra eftir klukkan 15:00

2. Borga á skráningakvöldinu

Í fljótu röðina fara þeir sem borga (í peningum eða með kortum) fyrir alla í einu á Kaffi Edinborg á föstudaginn.

Í hægu röðina fara þeir sem

  • borga fyrir einn og einn í einu

Nokkrar spurningar

Er hægt að borga á laugardeginum?
Bara í undantekningartilvikum. Best er að fyrirliðinn sjái um að sækja armbandið fyrir þá sem komast ekki strax. Skrapliðsmenn sem komast ekki á skráningarkvöldið geta t.d. borgað á laugardeginum.

Hvenær og hvar kaupir maður miða á lokahófið og ballið (fyrir þá sem komast ekki á mótið sjálft)?
Á skráningarkvöldinu kaupir maður miða á lokahófið og ballið (t.d. fyrir maka eða þá sem geta ekki keppt). Verðið er 3500 kr. fyrir það. Takmarkað magn fyrstir koma fyrstir fá.

En með skrapliðin?
Skrapliðsfólk fær að fara í fljótu röðina til að borga fyrir sig. Gylfi yfirskrapari verður á staðnum til að stilla saman strengi. Búið er að útvega stuttermaboli í samstæðum litum fyrir skrapliðin.

Fleiri spurningar? Komdu á skráningarkvöldið!

Skráningakvöldið

Skráningin hefst kl. 18:00 í stóra salnum í Edinborgarhúsinu. Klukkan 21:00 er dregið í riðla, reglur kynntar og leikskipulag útskýrt og sýnt. Fundarstjóri er gleðipinninn Hálfdán Bjarki Hálfdánarson. Skráningarkvöldinu lýkur um klukkustund seinna. Mælt er með því að fá sér bjór á barnum og byrja að semja hvatningarsöngva.