Leikfyrirkomulag-endanlegt
Leikir eru allir 2 x 8 mínútur.
Kvennadeild
Riðlar í kvennadeild eru 6 liða. Hvert lið leikur þrjá leiki, og mun hvert lið því ekki keppa við tvö lið úr sínum riðli.
Að leik loknum eru tvö efstu lið í hverjum riðli sett í átta liða úrslit, sem og tvö af þremur stigahæstu liðum í þriðja sæti. Þau lið sem tapa í 8 liða úrslitum fá að keppa um 5-6 sæti með því að leika einn leik til viðbótar. Þau lið sem halda áfram fara í undanúrslit og úrslit. Leikinn er leikur um bronsið.
Þau 12 lið sem ekki komast í útsláttarkeppnina leika í gleðideildinni. Þar eru leiknir tveir leikir við önnur lið í gleðideildinni. Dregið er í leikina.
Karladeild
Í karlaflokki eru þrír fjögurra liða riðlar og þrír fimm liða. Í fjögurra liða riðlum leika allir við alla, en í fimm liða riðlum leikur hvert lið þrjá leiki nema eitt lið, sem leikur fjóra. Fjórði leikurinn hjá því liði telur ekki í stigatalningunni.
Að leik loknum eru öllum liðum úr öllum riðlum raðað upp eftir stigafjölda. Sextán efstu liðin fara í útsláttarkeppni, þar sem efsta liðið keppir á móti því í sextánda sæti, annað liðið við það í fimmtánda og svo framvegis. Þau lið sem tapa í 16 liða úrslitum fá að keppa um 9-12 sæti með því að leika einn leik til viðbótar. Þau lið sem halda áfram fara í átta liða úrslit, undanúrslit og úrslit. Leikinn er leikur um bronsið.
Þau 11 lið sem ekki komast í útsláttarkeppnina leika í gleðideildinni. Þar eru leiknir tveir leikir við önnur lið í gleðideildinni. Dregið er um hvaða lið leika gegn hverjum.
Með þessu fyrirkomulagi fá öll lið að leika tvo leiki seinni daginn og komið er til móts við bæði keppnisfólk og gleðikeppendur. Ljóst er að einhverjum finnst e.t.v. uppröðunarkerfið í útsláttarkeppnina vera ósanngjarnt, en á móti kemur að dregið er í riðla og um það á móti hvaða liðum hvert lið leikur í riðlum, svo það ætti ekki að vera of íþyngjandi.
Hvenær?
Keppt er fyrri daginn frá 10 til 18. Seinni daginn er keppt frá 11:30 til 18:00. Ekki er tekið við séróskum þegar kemur að því að raða liðum á leiktíma. Reynt er að haga pásum á milli leikja þannig að þær verði stuttar ef veður er vott en aðeins lengri ef veður er gott. Hvert lið ætti þó ekki að þurfa að vera drullugt lengur en 4 tíma fyrri daginn, en seinni daginn þurfa þau lið sem komast áfram náttúrulega að vera drullug lengi dags.
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 30. júlí 2009 20:03
