Mótið að fyllast!! - hámarksfjöldi í lið
ágætu mýrarboltamenn og konur,
Nú er ljóst að þátttakan í ár mun slá öll met og eru skráningar þegar farnar fram úr skráningum fyrri ára. við skipuleggjendur erum farnir sjá fram á að mótið mun ekki taka við eins mörgum og vilja skrá sig. Því getur farið svo að skráningum verði lokað. Þess vegna hvetjum við alla sem eru ákveðnir að koma vestur um verló á mýrarboltan að skrá lið sem allra fyrst.
ástæða fyrir þessum hugsanlegu takmörkunum er einfaldlega vegna þess að við höfum bara þrjá velli sem anna bara ákv. fjölda liða. En stæsta vandamálið er lokahófið, en félagsheimilið í hnífsdal tekur ekki endalaust við. Við erum að vinna í að stækka borðsalin með tjaldi, en það kemur í ljós á næstu dögum hvernig niðurstað úr því verður.
Af sömu ástæðum hefur verið ákveðið að takmarka fjölda við 15 einstaklinga í liði.
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 23. júlí 2009 16:42




