Langar þig á Mýrarboltann - en vantar að komast í lið?

Nokkuð hefur borið á því að áhugasamir keppendur hafa haft samband og lýst yfir áhuga á að koma á Ísafjörð á versló til að taka þátt í mýrarboltanum, en ekki verið í liði.

Þetta er ekkert vandamál, þar sem þegar er búið að stofna "skraplið" karla og kvenna, en það er einmitt búið til fyrir einstaklinga sem langar að taka þátt en eru ekki í neinu liði.

Ef þú hefur áhuga á að komast í skraplið, sendu þá tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og við setjum þig í lið.

 

ATH - ATH ef þið eruð með lið en vantar baa nokkra til að ná tilsettum fjölda (6 inná í einu), ekki hika við að senda okkur línu og við auglýsum eftir keppendum á síðunni.