Mýrarboltinn notaður í alþjóðlegri markaðssetningu Canon

Mýrarboltamótið á Ísafirði vekur athygli víða um heim. Á síðasta ári efndi Canon til alþjóðlegrar keppni meðal áhugaljósmyndara þar sem myndir frá þeim voru valdar af notendum Canon ásamt nefnd af heimsfrægum ljósmyndurum.

Sigurvegararnir fengu svo að fara í sérstaka ferð á áhugaverða staði og viðburði um allan heim, eða „photographic experience of a lifetime“ eins og það er orðað á heimasíðu Canon. Fjórir áhugaljósmyndarar urðu fyrir valinu og fór einn þeirra, David Bernard frá Tékklandi, með félögum sínum til Ísafjarðar til að taka þátt í mýrarboltamótinu á Ísafirði.

Verkefnið hefur vakið athygli um allan heim og er það mikil viðurkenning fyrir Mýrarboltann að verða fyrir valinu sem einn áhugaverðasti viðburður í heimi til ljósmyndunar og skemmtunar.

Með Tékkanum í för voru kvikmyndagerðamenn á vegum Canon sem gerðu stutta heimildamynd um ferðina sem sýnd er á heimasíðu fyrirtækisins.

Nánari upplýsingar um keppnina og myndbandið er hægt að finna hér:

http://ta.canon-europe.com/index.php?pg=ultimate&section=sport&cc=gb&lc=en