Leikur úrvalsliðs Guðjóns Þórðarsonar, þjálfara Skástriksins, og stjörnuliðs Mýrarboltans á Ísafirði, sem leikinn var í morgun var æsispennandi. Leikurinn var framlengdur en þá skoraði stjörnulið Mýrarboltans sigurmarkið í vítaspyrnukeppni. „Þetta var mjög spennandi og skemmtilegur leikur og aðstæður hinar bestu,“ sagði Jóhann Bæring Gunnarsson drullusokkur Mýrarboltans við blaðamann BB.
Þetta var fyrsti leikur tímabilsin. Meðal leikmanna í úrvalsliði Mýrarboltafélagsins er ólympíufarinn og bæjarstjórinn Daníel Jakobsson.
Mýrarboltamótið sjálft fer fram á Ísafirði um verslunarmannahelgina og er eina löggilta mýrarboltamót landsins.
